Forsíða

Greinar

23. apríl 2009
Öll störf skipta máli

Atvinna og uppbygging atvinnutækifæra eru ásamt grunnþjónustu mikilvægustu hornsteinar byggða og samfélaga. Fjölbreytileiki atvinnulífs skapar meiri möguleika fyrir samfélög til uppbyggingar. Heimilin fá súrefni frá atvinnulífinu og krafa fólks í dag eru bætt lífskjör. Sem betur fer hefur okkur Íslendingum tekist að byggja upp samfélag sem er með því besta sem þekkist í heiminum hvernig sem á það er litið. Undirstöður atvinnulífsins eru sterkar, þótt tímabundið blási á móti eru framleiðslutækin, þekkingin og krafturinn enn til staðar. Krafturinn sem við sjálfstæðismenn ætlum að virkja, fólkinu og heimilum til framdráttar.

Uppbygging á Grundartanga var mikið lán
Uppbygging stóriðju á Grundartangasvæðinu var mikið lán fyrir syðsta hluta Norðvesturkjördæmis. Saga þessarar þróunar spannar nálægt 30 ár og sér ekki fyrir endann á henni ef rétt er á málum haldið. Mikil umræða er um ný tækifæri á svæðinu t.d. gagnaver, sólarkísilverksmiðju, uppbyggingu hafnarsvæðisins og með stöðugri þróun hefur aukning framleiðsluverðmæta þeirrar vöru sem framleidd er á svæðinu vaxið mikið. Menn hafa orðið vitni að öflugri þróun byggða, atvinnulífs, þjónustu og umfram allt getu alls svæðisins til framfara á öllum sviðum. Margföldunaráhrif stóriðjustarfseminnar á svæðinu dylst engum sem vitni hafa orðið að. Stóriðjan hefur styrkt litlu fyrirtækin á svæðinu, eflt þau og í sumum tilfellum „hjálpað“ þeim að verða stór. Um er að ræða fyrirtæki í öllum greinum, þjónustu, þekkingarfyrirtæki, málmiðnaðarfyrirtæki, rafiðnaðarfyrirtæki og svo mætti áfram telja. Öll tölfræði fyrir svæðið tekur jákvæðum breytingum hvað varðar íbúaþróun, fjölgun starfa, hækkun tekna og aðra þá þætti sem máli skipta við hvern áfanga sem tekinn hefur verið í notkun á Grundartangasvæðinu á síðustu 30 árum. Starfsemin á Grundartanga hefur glætt nærsamfélagið lífi svo um munar. Það er ekki tilviljun að þau svæði landsins sem hafa haft á brattan að sækja horfa mjög til stóriðju sem lausn til að örva sín svæði. Skyldi það vera vegna þess árangurs sem þau sjá á Grundartangasvæðinu?

Verðmætasköpun fyrirtækjanna á Grundartanga er gríðarleg, bein og óbein störf eru þúsundir. Verðmætasköpunin telur í milljörðum króna á ári og þetta eru mikilvægar grunnstoðir sem Sjálfstæðisflokkurinn vill byggja á, verðmætasköpun, þekking og mannauður eru óaðskiljanlegir þættir þess að tryggja lífskjör og lífsgæði til frambúðar.
Sjálfstæðisflokkurinn vill skapa ný atvinnutækifæri
Sjálfstæðisflokkurinn vill byggja á atvinnutækifærum sem nýta allar auðlindir á sjálfbæran hátt í sátt við umhverfið og skapa með þeim hætti verðmæti og útflutningstekjur sem bæta lífskjör íbúa svæðisins og skapa þeim fleiri og fjölbreyttari tækifæri. Sjálfstæðisflokkurinn hefur í gegnum tíðina verið í forystuhlutverki í uppbyggingu á þekkingarstarfsemi af öllu tagi og sækist eftir því að leiða þá uppbyggingu áfram, þjóðinni til farsældar.

Ásbjörn Óttarsson
1. sæti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi



24. mars 2009
Næsta Skref

Prófkjöri sjálfstæðismanna í kjördæminu er lokið. Vonandi eru flestir sammmála um að hópur efstu manna sé fjölbreyttur og listinn um leið líklegur til afreka í kosningunum sem framundan eru. Næsta skref okkar sjálfstæðismanna er að fylkja liði, snúa bökum saman og vinna sem einn maður að því markmiði að Sjálfstæðisflokkurinn varðveiti... Meira

20. mars 2009
Grettistak

Framundan eru kosningar sem geta orðið einhverjar afdrifaríkustu kosningar sem gengið hefur verið til á lýðveldistímanum. Núverandi ríkisstjórn hefur þegar valdið vonbrigðum með úrræðaleysi sínu og skýr leiðsögn Sjálfstæðismanna út úr vandanum er afar mikilvæg. Nýrra vinnubragða er þörf í Alþingishúsinu og nýrra viðhorfa sömuleiðis. Sókn er... Meira

20. mars 2009
Treysti Ásbirni best

Treysti Ásbirni best – nýtum aflið.

Laugardaginn 21. mars n.k. verður prófkjör Sjálfstæðisflokksins í  NV-kjördæmi.  Við sjálfstæðismenn fáum tækifæri til endurnýjunar á lista flokksins, margir góðir einstaklingar bjóða sig nú fram til starfa og það er sérlega ánægjulegt að sjá hversu margbreytilegur hópurinn er bæði hvað... Meira



Eldri greinar

OZON-Vefumsjónarkerfið